Close-up Photography of Body of Water

Makkerinn

Makkerinn er fjörugt og fróðlegt spurningaspil um stangveiði á Íslandi.

Spilið inniheldur 1470 spurningar sem skiptast í fimm flokka.

-Í fyrsta kasti: Almennar spurningar

-Fluguboxið: Myndagáta með flugum

-Makkerinn segir: Fullyrðingar Makkersins sem eru annaðhvort sannar eða ósannar

-20.pundari: Virkilega erfiðar spurningar

-Þríkrækjan: Vísbendingaspurningar

Leikreglur

  • Hægt er að spila Makkerinn bæði í einstaklings-og liðakeppnum.
  • Einn þátttakandi tekur að sér hlutverk spyrils en einnig má dreifa því hlutverki á fleiri.
  • Spurningar Makkersins skiptast í fimm flokka og er mælt með að nota 20 til 25 spurningar í hverjum leik.
  • Alveg frjálst að velja hversu margar spurningar eru notaðar úr hverjum flokki.
  • Í flokknum Fluguboxið er mikilvægt að spyrill haldi fyrir nafn flugunnar þegar myndin er sýnd þátttakendum.
  • Liðin þurfa svarblöð og skriffæri og þeir skrifa svör sín á blöðin.
  • Þegar allar spurningarnar hafa verið lesnar upp skiptast liðin á svarblöðum og Spyrill fer yfir svörin.
  • Eitt stig fæst fyrir hvert rétt svar og það lið sem svarar flestum spurningum rétt sigrar.

Tilbúið Svarblað

Document Icon

Smelltu á myndina til að opna svarblað til útprentunnar